Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, og Haraldur Franklín Magnús, GR, voru báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumótum fyrir Opna mótið í gær, þar sem leikið var um sæti á hinu sögufræga risamóti.
Lokaúrtökumótin fóru fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí.
Íslensku kylfingarnir léku ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín var á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni lék á West Lancashire á Englandi.


Okkar menn náðu ekki að spila sig inn á risamótið en sýndu þó góða takta, sérstaklega á seinni hring dagsins.
Haraldur endaði jafn í 35. sæti á Dundonald Links. Hann bætti sig um tíu högg á milli hringja, lék fyrri hringinn á 81 höggi og þann seinni á 71 höggi. Seinni hringur Haralds var sá sjötti besti af öllum kylfingum, en erfið byrjun á fyrri hringnum reyndist dýr.
Svipaða sögu má segja af Gunnlaugi Árna. Hann lék fyrri hringinn á 75 höggum, þremur höggum yfir pari, eftir erfiðan upphafskafla. Gunnlaugur bætti sig um fimm högg á milli hringja og lék seinni hringinn á tveimur höggum undir pari, fékk þar fjóra fugla, tvo skolla og endaði jafn í 36. sæti.
Fínn árangur hjá íslensku kylfingunum í sterkum keppendahópi. Næstu verkefni Gunnlaugs Árna verða með íslenska landsliðinu í golfi á næstu vikum, en Haraldur verður á meðal keppenda á Le Vaudreuil Golf Challenge mótinu á HotelPlanner Tour sem hefst á morgun.




