Golfdagar KPMG hafa verið haldnir víða um land síðustu daga þar sem fjölskyldum hefur verið boðið að koma og kynnast golfíþróttinni í skemmtilegu og afslöppuðu umhverfi.
Golfdagarnir eru ætlaðir fyrir alla fjölskylduna og eru frábært tækifæri fyrir börn, unglinga og fullorðna til að prófa golf og fá innsýn í íþróttina. Boðið var upp á kynningu á grunnatriðum golfsins, léttar æfingar og skemmtilega samveru við klúbbhúsin.
Auk golfkynningarinnar var boðið upp á grill, alls kyns veitingar og fengu þátttakendur gjafir frá KPMG og Golfsambandi Íslands.
Síðustu Golfdagar fóru fram hjá Golfklúbbi Byggðarholts 23. júní, Golfklúbbnum Hamar Dalvík 28. júní og Golfklúbbi Hornafjarðar 30. júní. Mæting var góð á öllum stöðum og tóku klúbbarnir vel á móti þeim sem sóttu viðburðina.
Síðasti Golfdagur sumarsins verður í Vestmannaeyjum þann 19. júlí og er markmiðið áfram að gefa sem flestum tækifæri til að kynnast golfíþróttinni á einfaldan, aðgengilegan og skemmtilegan hátt.













