Gunnlaugur Árni Sveinsson hóf í dag leik á U.S. Open mótinu, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York.
Hér má fylgjast með skori mótsins
Gunnlaugur hóf leik tveimur tímum seinna en upphaflega var gert ráð fyrir, þar sem leik var frestað snemma um morguninn vegna þoku.
Hann hóf leik á fyrstu holu og byrjaði hringinn á öruggu pari. Það hafði bætt dálítið í vindinn þegar Gunnlaugur fór af stað og aðstæður því mjög krefjandi.
Eftir ágætis byrjun lenti Gunnlaugur í vandræðum á sjöttu holunni. Þar sló hann teighögg sitt út fyrir vallarmörk og fékk slæma legu í háa grasinu í seinna teighöggi sínu. Átta högg raunin og tveir skollar fylgdu þar á eftir. Frá níundu holunni lék Gunnlaugur mjög fínt golf. Hann kom sér í fín fuglafæri og var sjaldan í vandræðum, en var óheppinn að setja ekki fleiri pútt niður.
Sólin var svo gott sem sest þegar þeir komu á fjórtándu holuna og engin spurning að hún yrði sú síðasta í dag. Gunnlaugur sló teighögg sitt rétt hægra megin við brautina og átti þar á eftir besta högg dagsins. Hann sló fallegt högg úr karganum sem lenti á flötinni og rúllaði beint í stöngina á litlum hraða. Gunnlaugur var óheppinn að boltinn skyldi ekki detta fyrir erninum, en hann rúllaði í stuttu fuglapútti og kláraði daginn með stæl.
Gunnlaugur er níu yfir pari eftir fyrstu fjórtán holurnar en á nóg inni og sýndi á síðustu holunum að hann getur auðveldlega sótt á aðra kylfinga mótsins á morgun.

Leikar hefjast á ný kl. 06:35 í fyrramálið (10:35 að íslenskum tíma) og klára Gulli og félagar þá síðustu fjórar holur fyrri hringsins. Að þeim loknum verður stutt pása og svo halda þeir út í annan hring mótsins.
Við munum áfram fylgjast vel með okkar manni á miðlum GSÍ á morgun. Sjáumst þá!



