Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik á U.S. Open, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York.
Hér má fylgjast með skori mótsins
Þetta er í sjötta sinn sem U.S. Open fer fram á Shinnecock Hills. Völlurinn hefur áður hýst mótið árin 1896, 1986, 1995, 2004 og 2018. Fáir vellir hafa hýst U.S. Open oftar, en Shinnecock jafnar nú við Pebble Beach, Oakland Hills og Winged Foot í fjölda móta.
Verkefnið sem bíður okkar manni ekki aðeins stórt vegna stærðar mótsins, heldur einnig vegna þess hversu erfiður Shinnecock Hills völlurinn hefur reynst kylfingum í gegnum tíðina.
Á síðustu fjórum U.S. Open mótum sem hafa farið fram á Shinnecock Hills, árin 1986, 1995, 2004 og 2018, hafa aðeins þrír kylfingar af 624 endað mótið undir pari. Það voru Raymond Floyd árið 1986, Retief Goosen árið 2004 og Phil Mickelson, einnig árið 2004. Enginn kylfingur endaði undir pari þegar mótið fór síðast fram á vellinum árið 2018.
Þá segir það sitt um erfiðleikastigið að af 446 skráðum keppnishringjum á U.S. Open á Shinnecock Hills árið 2018 var ekki einn einasti hringur án skolla. Síðustu skollalausu hringirnir á vellinum í U.S. Open komu á öðrum keppnisdegi árið 2004. Síðan þá hafa 578 skorkort verið skiluð á Shinnecock Hills í U.S. Open og á þeim öllum hefur verið að minnsta kosti einn skolli eða verra.
Brooks Koepka stóð uppi sem sigurvegari árið 2018, þrátt fyrir að hafa byrjað mótið á 75 höggum eða fimm yfir pari. Hann var jafn í 46. sæti eftir fyrsta hring, en náði að vinna sig upp og tryggja sér sinn annan U.S. Open titil í röð.
Meðalskor keppenda á U.S. Open á Shinnecock Hills árið 2018 var 74,65 högg, eða 4,65 högg yfir pari. Það er hæsta meðalskor miðað við par á U.S. Open síðustu 18 ár. Til samanburðar var meðalskorið á Oakmont í fyrra 74,18 högg, eða 4,18 yfir pari, þrátt fyrir afar krefjandi aðstæður.
Erfiðleikarnir á Shinnecock Hills sjást einnig á því að meðalskor keppenda hefur verið að minnsta kosti tveimur höggum yfir pari í hverjum einasta U.S. Open hring sem leikinn hefur verið á vellinum frá lokahringnum árið 1986. Það eru 13 hringir í röð.
Fyrstu hringirnir hafa verið sérstaklega erfiðir. Árið 1986 var meðalskorið í fyrsta hring 77,88 högg og árið 2018 var það 76,47 högg. Það undirstrikar hversu erfitt getur verið að finna taktinn á Shinnecock Hills, þar sem vindur, hröð grín, krefjandi flatir og refsigjarnar aðstæður gera hverja holu að prófraun.
Shinnecock Hills er völlur þar sem þolinmæði, nákvæmni og andlegur styrkur skipta gríðarlega miklu máli. Þar er ekki endilega nauðsynlegt að spila gallalaust golf, heldur að halda sér inni í mótinu þegar mistökin koma, því sagan sýnir að þau koma hjá öllum.
Fyrir Gunnlaug Árna verður þátttakan söguleg fyrir íslenskt golf. Hann er fyrsti íslenski kylfingurinn til að leika á U.S. Open karla og fær nú tækifæri til að keppa við bestu kylfinga heims á einum erfiðasta velli sem mótið hefur upp á að bjóða.
Gunnlaugur á rástíma kl. 18:20 að íslenskum tíma í dag. Leik var frestað í morgun og enn óvíst hvaða áhrif það mun hafa á rástíma Gunnlaugs. Við munum fylgjast vel með honum á miðlum GSÍ næstu dagana.



