Fatlaðir kylfingar njóta nú skýrari og formlegri stuðnings innan golfreglna með tilkomu
reglu 25, Breytingar vegna fatlaðra leikmanna, sem kom ný inn árið 2023, en hún
tekur sérstaklega á aðlögunum fyrir leikmenn með mismunandi fötlun.
Í tilgangi reglunnar segir:
Í reglu 25 er lýst breytingum á ákveðnum golfreglum til að gefa leikmönnum
með tilteknar fatlanir kost á að keppa á jafnréttisgrundvelli við ófatlaða
leikmenn, leikmenn með sömu fötlun eða leikmenn með annars konar fötlun.
Markmiðið er að tryggja sanngjarna þátttöku í bæði keppni og almennum leik, án
þess að breyta grundvallaranda íþróttarinnar. Reglan gildir fyrir kylfinga sem eru
blindir eða sjónskertir, aflimaðir (nær bæði til leikmanna sem hafa fæðst án útlims
eða hafa misst útlim), nota hreyfihjálpartæki eða eru með þroskahömlun.
Aðstoð, lausnir og sértækar undanþágur
Reglan felur í sér að sumir leikmenn mega fá aðstoð frá aðstoðarmanni eða
leiðbeinanda, til dæmis við að stilla sér upp fyrir högg, miða eða framkvæma ákveðin
verk sem tengjast boltanum og legu hans.
Fyrir kylfinga sem nota hjólastól eða önnur hreyfihjálpartæki eru einnig veittar
sértækar undanþágur, meðal annars rýmri möguleikar á lausn úr rauðum
vítasvæðum (fjórar kylfulendir í stað tveggja), reglur um lausnir í glompum þar sem
aðgengi er erfitt og þegar bolti telst ósláanlegur.
Þá er refsilaust fyrir blinda að snerta sand í glompu, bæði fyrir högg og í aftursveiflu,
svo eitthvað sé nefnt.
Þá er ekki gengið eins strangt eftir atriðum eins og að láta falla úr hnéhæð, þar sem
það gæti verið erfitt í framkvæmd sökum fötlunar. Að stilla bolta upp getur einnig
verið vandasamt og má leikmaður því í sumum tilfellum rúlla boltanum á réttan stað
með aðstoð kylfu.
Reglurnar eru þó ekki eins fyrir alla flokka, heldur miðast þær við eðli fötlunar og þá
aðstoð sem þarf til að jafna stöðu leikmanna.
Miklar breytingar eru í sumum tilfellum á þeirri aðstoð sem kylfingur má fá frá
kylfubera og/eða aðstoðarmanni.
Eins og gefur að skilja geta fatlaðir leikmenn oft þurft lengri tíma til að komast að
bolta sínum og leika honum. Regla 25.6 beinir því sérstaklega til mótsstjórna að taka
mið af þeim þáttum þegar kemur að leikhraðamálum. Þar segir meðal annars:
Ætti nefndin að setja viðmið sem hún telur sanngjörn með tilliti til hversu
erfiður völlurinn er, veðurskilyrða (vegna þeirra áhrifa sem þau gætu haft á notkun hreyfihjálpartækja), eðlis keppninnar og fötlunar þeirra leikmanna sem
taka þátt í keppninni.
Með vísan til þessara þátta kann að vera viðeigandi fyrir nefndina að beita
slakari túlkun en ella á því hvað teljist óhæfileg töf.
Hæfi ræðst af flokkun og staðfestingu
Til að nýta aðlögun samkvæmt reglu 25 þarf leikmaður að uppfylla ákveðin skilyrði. Í
mörgum keppnum er stuðst við staðfestingu á borð við WR4GD- eða EDGA-pass,
samtök fatlaðra leikmanna, sem staðfestir að leikmaður falli innan þeirra
fötlunarflokka sem reglan nær til.
Leiðbeiningar frá golfsamtökum og mótshöldurum eru mikilvægar til rétt flokkun sé
gerð til að tryggja samræmi, gagnsæi og sanngirni í framkvæmd reglnanna.
Aðlagað golf fær aukið vægi
Innleiðing reglu 25 endurspeglar vaxandi áherslu á aðlagað golf á alþjóðavísu. Mót á
borð við U.S. Adaptive Open, G4D Tour og önnur mót, m.a. hér á landi í tengslum við
Íslandsmótið í höggleik, hafa aukið sýnileika fatlaðra kylfinga og undirstrikað
mikilvægi þess að reglurnar tryggi jafna og raunhæfa þátttöku.
Með þessari þróun er aðgengi ekki lengur jaðarmál í golfi, heldur hluti af sjálfri
umgjörð íþróttarinnar.
Reglurnar
Öllum þeim sem koma að framkvæmd opinna móta er bent á að kynna sér vel þessa
mikilvægu reglu, reglu 25, en hana má finna bæði á vefsvæði R&A (www.randa.org)
og í appinu frá R&A Rules of golf 2023. Allar golfreglurnar og skýringar þeirra, ásamt
öllum skilgreiningum og verklagi nefnda, hafa verið þýddar yfir á íslensku.


