GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Poster advertising golf events titled 'Mótavaktin' with four event cards and a map of Europe showing routes from Sweden, Denmark, and Morocco to the Alps.
Íslenskir kylfingar á ferð og flugi
Auglýsing

Tímabil íslenskra atvinnu- og afrekskylfinga eru komin á fullt og keppa þeir víðs vegar um heiminn í vikunni. Í mótavaktinni fylgjumst við með gengi þeirra og gerum upp mót vikunnar.

HotelPlanner Tour

Haraldur Franklín Magnús er á meðal keppenda á Danish Golf Challenge mótinu á HotelPlanner Tour mótaröðinni sem fram fer dagana 21. til 24. maí í Odense í Danmörku. Mótið er leikið á Odense Eventyr Golf vellinum sem hefur undanfarin ár verið fastur viðkomustaður mótaraðarinnar. Þetta er sjöunda mót Haralds á mótaröðinni á tímabilinu, en hann hefur best náð 39. sætinu hingað til.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Let Access

Á LET Access mótaröðinni fer Allegria Ladies Open mótið fram dagana 20. til 22. maí á Sudburgenland vellinum í Allegria Golf Resort í Austurríki. Þar verða þær Ragnhildur Kristinsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir allar á meðal keppenda. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næst sterkasta mótaröð Evrópu og mikilvægur vettvangur fyrir kylfinga sem stefna á sæti á LET mótaröðinni.

Há má fylgjast með stöðu mótsins

LET Tour

Á LET mótaröðinni fer Lalla Meryem Cup mótið fram dagana 21. til 23. maí í Rabat í Marokkó. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er þar á meðal keppenda en mótið er leikið á hinum glæsilega Blue Course velli Royal Golf Dar Es Salam golfklúbbsins, sem er einn þekktasti keppnisvöllur Norður-Afríku. Lalla Meryem Cup hefur verið fastur liður á LET mótaröðinni um árabil og er leikið samhliða Hassan II Trophy mótinu.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Nordic Golf League

Á Nordic Golf League mótaröðinni fer Cutter & Buck Fjällbacka Open mótið fram dagana 21. til 23. maí í Svíþjóð. Þar eru þeir Sigurður Arnar Garðarsson og Dagbjartur Sigurbrandsson meðal þátttakenda. Báðir hafa þeir leikið vel á mótaröðinni það sem af er ári, og eru báðir á meðal þrjátíu efstu kylfinga stigalistans.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ