Gunnlaugur Árni Sveinsson og lið hans úr LSU háskólanum eru á meðal keppenda í NCAA svæðismóti sem fram fer í Arizona dagana 18.-20. maí. Í mótinu mætast fjórtán bestu háskólalið svæðisins og leika um fimm laus sæti í úrslitakeppni bandaríska háskólagolfsins.
Gunnlaugur hefur leikið fyrstu tvo hringi sína á 74-75 höggum og er jafn í 56. sæti einstaklingskeppninnar á fimm höggum yfir pari. Þrír liðsfélagar hans eru á meðal tíu efstu kylfinga mótsins, og LSU liðið því í góðum málum.

Efstu fimm lið mótsins komast áfram í úrslitakeppnina, en fyrir lokahringinn eru Gunnlaugur og félagar í fjórða sæti, sex höggum á undan Alabama háskólanum sem er í sjötta sæti.
Gunnlaugur Árni hefur verið lykilmaður í liði LSU á tímabilinu. Landsliðskylfingurinn sigraði m.a. á Fallen Oak Invitational mótinu og varð best áttundi á heimslista áhugakylfinga.
Það verður spennandi að fylgjast með hvort Gunnlaugur nái að spila sig inn í þetta stóra mót í fyrsta skiptið, en LSU hefur einungis komist þangað einu sinni á síðustu fimm árunum. Okkar maður á rástíma kl. 14:30 að íslenskum tíma á tíunda teig vallarins, en hægt er að fylgjast með stöðu mótsins hér.



