GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfsumarið er hafið og samhliða því hefst GSÍ mótaröðin. Þar leika bestu kylfingar landsins í karla- og kvennaflokki um eftirsótta titla þar sem lokamótið, Íslandsmótið í höggleik, er hápunktur ársins. 

Mótaröðin í ár samanstendur af sjö mótum sem dreifast yfir keppnistímabilið. Hvert mót er með sína sérstöðu og fá kylfingar stig fyrir árangur í hverju móti fyrir sig. Mótin hafa mismikið vægi, en Íslandsmótin tvö vega þyngst á stigalista GSÍ mótaraðarinnar.

Golfer addressing a cheering crowd on a sunny day; GSÍ MÓTARÖÐIN event poster with dates and sponsor logos.
Dagskrá mótaraðarinnar í sumar

Reykjanesmót GS og GSG

Fyrsta mót tímabilsins fer fram dagana 15.-17. maí á golfvöllum GS og GSG. Leikinn er 54 holu höggleikur í flokki karla og kvenna sem dreifist á þrjá keppnisdaga. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis.

Mótið setur tóninn fyrir sumarið og verður frábært að sjá okkar fremstu kylfinga á vellinum á ný.

Hvaleyrarbikarinn og Korpubikarinn

Hvaleyrarbikarinn og Korpubikarinn eru vegleg mót sem hafa verið hluti af GSÍ mótaröðinni um árabil. Mótin fara ávallt fram á Hvaleyrarvelli og Korpúlfsstaðavelli. Leikfyrirkomulagið er 54 holu höggleikur.

GSÍ mót

GSÍ mótaröðin ferðast á Þorlákshöfn í byrjun júní og á Leirdalsvöll GKG í lok júlí. Í báðum mótunum er leikinn 54 holu höggleikur. Mótin eru undanfarar Íslandsmótanna tveggja, og gætu gefið góða mynd um það hvaða kylfingar verði líklegir til árangurs þar.

Íslandsmótið í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni hefst á 36 holu höggleik. Í framhaldinu leika 16 efstu kylfingarnir holukeppni með útsláttarfyrirkomulagi þar til einn stendur eftir sem Íslandsmeistari í holukeppni. Konur leika á Urriðavelli og karlar á Hólmsvelli, en bæði mótin fara fram 19.-21. júní.

Íslandsmótið í golfi 

Íslandsmótið í golfi er hápunktur sumarsins og lokamót GSÍ mótaraðarinnar. Leikfyrirkomulagið er 72 holu höggleikur þar sem sigurvegarar karla og kvenna hljóta titilinn Íslandsmeistari í golfi. Auk þess eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar krýndur. Mótið í ár fer fram á Korpúlfsstaðavelli og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Við hvetjum alla til að mæta á mótin í sumar.

Sjáumst á vellinum!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ