Búið er að opna fyrir skráningu í fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar sem fram fer í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí.
Keppt er í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.
Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í eftirfarandi flokkum:
Stúlkur 15-16 ára
Stúlkur 17-18 ára
Piltar 15-16 ára
Piltar 17-18 ára
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan
