GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Fyrsta mót Unglingamótaraðar Golfsambands Íslands, sem átti upphaflega að fara fram dagana 23.–24. maí en var aflýst vegna skorts á mótshaldara, hefur nú verið sett aftur á dagskrá.

Golfsamband Íslands hefur þegið boð stjórnar Golfklúbbs Þorlákshafnar um að taka mótið að sér og fer það fram á Þorláksvelli dagana 23.-25. maí, yfir Hvítasunnuhelgina. Leiknar verða 54 holur á keppnisdögunum þremur.

Með þessu tryggir GÞ að unglingar landsins fái tækifæri til að hefja keppnistímabil sitt sem fyrst, en mótaröðin er mikilvægur vettvangur fyrir okkar efnilegu kylfinga.

Golfsamband Íslands er þakklátt Golfklúbbi Þorlákshafnar fyrir að leysa þetta mikilvæga mál. Hér að neðan má sjá dagskrá Unglingamótaraðarinnar í sumar.

Golfer in teal shirt mid-swing on a golf course; a red Icelandic event title Unglingamótaröðin and sponsor logos appear below.
Dagskrá Unglingamótaraðarinnar 2026

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ