Andri Þór Björnsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarafreksstjóri Golfsambands Íslands.
„Ég er virkilega þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt og ég hlakka mikið til starfsins. Ég er spenntur fyrir samstarfinu með Ólafi Birni afreksstjóra og einnig öllu flotta teyminu sem starfar hjá Golfsambandinu. Ég hlakka til að gera gott starf enn betra og ég get ekki beðið eftir því að aðstoða kylfinga hér á landi við það að komast í fremstu röð,“ segir Andri Þór sem sinnir starfi aðstoðarafreksstjóra í fullu starfi frá og með 15. apríl.
Andri Þór hefur um árabil verið einn af bestu kylfingum landsins. Hann hefur fimm sinnum sigrað á GSÍ mótaröðinni og lék á sínum atvinnumannaferli á HotelPlanner Tour og Nordic Golf League. Andri útskrifaðist úr Nicholls State í Bandaríkjunum með B.S. gráðu í viðskiptafræði, hefur þjálfað hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og var þjálfari piltalandsliðsins á Evrópumóti liða í fyrra.
„Ég vil óska Andra Þór til hamingju með starf aðstoðarafreksstjóra GSÍ. Hann kemur inn með mikla ástríðu og dýrmæta reynslu frá sínum landsliðs- og atvinnumannaferli. Ég er sannfærður um að Andri Þór muni leggja sig allan fram við að framfylgja háleitri stefnu golfhreyfingarinnar í afreksmálum og veita okkar afrekskylfingum mikilvægan stuðning á þeirra vegferð í góðu samstarfi við golfklúbba landsins“, segir Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ.
Golfsamband Íslands býður Andra Þór velkominn til starfa.
