GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Óliver sáttur með ásinn
Auglýsing

Íslenski landsliðskylfingurinn Óliver Elí Björnsson fór holu í höggi á fjórðu holu PGA Aroeira 1 vallarins um helgina. Óliver var á meðal keppenda í GJG Juniors International mótinu ásamt 19 öðrum landsliðskylfingum.

Fjórða hola PGA Aroeira 1 vallarins er 154 metrar og sló Óliver höggið með 8 járni. Með högginu fullkomnaði landsliðskylfingurinn ótrúlegan fimm holu kafla sinn, er hann lék fimm holur á fimm höggum undir pari. Óliver hóf leik á tíundu holunni og lauk seinni níu holunum með fugli á átjándu holunni. Á fyrstu holunni fékk Óliver örn og fylgdi honum eftir með fugli á annarri. Hann fékk skolla á þriðju holunni og svo loks ás á þeirru fjórðu.

Örn fugl skolli hola í höggi

Óliver lék hringinn á 71 höggi, einu undir pari, og endaði fjórði í mótinu. Frábær árangur hjá þessum efnilega kylfingi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ