Síðustu æfingabúðir íslensku golflandsliðanna fóru fram fyrr í mánuðinum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem aðstæður voru með besta móti. Hópurinn æfði í nýrri og glæsilegri golfhermaaðstöðu Sweet Spot í Garðabæ, þar sem landsliðskylfingarnir höfðu aðgang að níu TrackMan golfhermum með nýjustu tækni. Á milli æfinga fengu kylfingarnir einnig tækifæri til að spreyta sig í pílu á staðnum, sem reyndist skemmtilegt uppbrot á deginum.

Einnig var æft í knattspyrnuhúsinu Fellinu í Mosfellsbæ sem og í aðstöðu Keilis í Hraunkoti í Hafnarfirði.
Helginni lauk með heimsókn hópsins á Golf Expo sýninguna í Laugardalshöll þar sem landsliðskylfingarnir nutu þess að fylgjast með frábærum fyrirlestri hjá Birgi Leifi Hafþórssyni. Fyrirlesturinn veitti leikmönnum hvatningu og innblástur fyrir komandi verkefni.

Í dag eru landsliðskylfingarnir staddir í Portúgal þar sem þeir taka þátt í Global Junior mótaröðinni, en þetta er þriðja keppnisferð hópsins á þessu ári.
Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
| Arnar Daði Svavarsson | GKG |
| Arnar Freyr Viðarsson | GA |
| Ágúst Már Þorvaldsson | GA |
| Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir | GR |
| Björn Breki Halldórsson | GKG |
| Bryndís Eva Ágústsdóttir | GA |
| Elva María Jónsdóttir | GK |
| Embla Hrönn Hallsdóttir | GKG |
| Erna Steina Eysteinsdóttir | GR |
| Eva Fanney Matthíasdóttir | GKG |
| Eva Kristinsdóttir | GM |
| Guðlaugur Þór Þórðarson | GL |
| Gunnar Þór Heimisson | GKG |
| Gunnlaugur Árni Sveinsson | GKG |
| Halldór Jóhannsson | GK |
| Hjalti Kristján Hjaltason | GKG |
| Kristján Karl Guðjónsson | GM |
| Lilja Maren Jónsdóttir | GA |
| Markús Marelsson | GK |
| Máni Freyr Vigfússon | GK |
| Óliver Elí Björnsson | GK |
| Pamela Ósk Hjaltadóttir | GKG |
| Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GKG |
| Sara María Guðmundsdóttir | GM |
| Skarphéðinn Egill Þórisson | NK |
| Tómas Eiríksson Hjaltested | GR |
| Veigar Heiðarsson | GA |








