GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Landsliðshópurinn í æfingaferð sinni á Akureyri í febrúar. Efri röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Óliver Elí Björnsson, Máni Freyr Vigfússon, Guðlaugur Þór Þórðarson, Björn Breki Halldórsson, Arnar Daði Svavarsson, Gunnar Þór Heimisson, Kristján Karl Guðjónsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Ágúst Már Þorvaldsson, Skarphéðinn Egill Þórisson, Arnar Freyr Viðarsson, Halldór Jóhannsson Neðri röð frá vinstri: Bryndís Eva Ágústsdóttir, Eva Kristinsdóttir, Elva María Jónsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Erna Steina Eysteinsdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir
Auglýsing

Tuttugu íslenskir landsliðskylfingar eru á meðal keppenda í Spring Junior Games móti Global Junior Golf í Portúgal. Mótið er það fyrra af tveimur í keppnisferð hópsins í Portúgal.

Gífurlegur fjöldi efnilegra íslenskra kylfinga er skráður í mótið, en ásamt íslenska landsliðshópnum eru aðrir tuttugu á meðal keppenda. Rúmlega helmingur keppenda eru því íslenskir, en hér að neðan má sjá hlutföll okkar kylfinga í mótinu.

KarlarKonur
Íslenskir keppendur2713
Heildarfjöldi keppenda5020

Spring Junior Games mótið er leikið á PGA Aroeira vellinum í Lissabon, en þar hafa meðal annars verið haldin mót á Evrópumótaröð karla og kvenna. Völlurinn er bæði langur og þröngur, en af öftustu teigum spilast hann 6367 metrar. Leiknir eru þrír hringir á þremur keppnisdögum í flokkum 23 ára og yngri, 18 ára og yngri og 14 ára og yngri.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

PGA Aroeira völlurinn

Seinna mót hópsins verður GJG Juniors International á Aroeira Pines Classic vellinum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir er ríkjandi meistari kvenna í mótinu, en verður þó ekki á meðal keppenda í ár til að verja titil sinn.

Gunnlaugur Árni Sveinsson á GJG Juniors International

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ