GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Heiðrún Anna - íþróttakona HSK
Auglýsing

Heiðrún Anna Hlynsdóttir, landsliðskylfingur úr Golfklúbbi Selfoss, var á dögunum valin íþróttakona
HSK fyrir árið 2025. Héraðssambandið Skarphéðinn veitir verðlaunin á héraðsþingi sínu og heiðrar með því það íþróttafólk sem náði bestum árangri á árinu.

Frá þessu er greint á vef HSK og á Facebook síðu GOS

Heiðrún Anna átti frábært ár á GSÍ mótaröðinni árið 2025. Hún varð Íslandsmeistari kvenna í holukeppni, stigameistari mótaraðarinnar og sigraði fjögur af þeim fimm mótum sem hún lék í. Þá bætti hún mótsmet GSÍ í kvennaflokki í Korpubikarnum þegar hún lék á 11 höggum undir pari.

Í aðdraganda Íslandsmótsins í golfi ristarbrotnaði Heiðrún, líkt og kom fram í Íslandsmótsblaðinu. Hún lék þó í mótinu og hafnaði þar í fimmta sæti, sem verður að teljast góður árangur miðað við aðstæður.

Heiðrún á Íslandsmótinu í holukeppni 2025

Heiðrún lék einnig með kvennalandsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi, þar sem íslenska liðið endaði í þrettánda sæti.

Þetta er góð viðurkenning á árangri Heiðrúnar á árinu 2025, óskum henni til hamingju með áfangann.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ