Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í fjórtánda sæti á ABSA Ladies Invitational mótinu sem fór fram í Suður-Afríku dagana 26.-28. mars. Mótið er hluti af Sunshine mótaröðinni, fór fram á Royal Johannesburg vellinum og var fjórða og síðasta mót hennar í landinu.
Andrea lék fyrsta hringinn á tveimur höggum yfir pari, fékk fimmtán pör, einn fugl, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Að fyrsta hring loknum sat hún jöfn í fimmtugasta sæti mótsins, tveimur höggum frá niðurskurðarlínunni.

Annan hringinn hóf hún af miklum krafti og lék fyrri níu holurnar á fjórum höggum undir pari. Seinni níu lék hún á einu yfir pari, kom í hús á 69 höggum (-3) og komst örugglega í gegnum niðurskurð.

Andrea hélt góðri spilamennsku sinni áfram á lokahringnum og lék hann einnig á þremur höggum undir pari. Hún fékk þar þrjá fugla, var skollalaus og endaði mótið á fjórum höggum undir pari í heildina. Þetta reyndist flottur endir á mótatörn Andreu í Suður-Afríku, en besti árangur hennar fyrir mót vikunnar var 24. sætið. Hér að neðan má sjá gengi Andreu í Suður-Afríku:
| Mót | Sæti |
| Standard Bank Ladies Open | Ekki í gegnum niðurskurð |
| Jabra Ladies Classic | T24 |
| Platinum Ladies Open | Ekki í gegnum niðurskurð |
| ABSA Ladies Invitational | T14 |
Hulda Clara Gestsdóttir var einnig á meðal keppenda mótsins. Hún lék hringi sína á 74-74 höggum og var þremur höggum frá því að ná í gegnum niðurskurð.
Hulda lék flott golf í fyrstu mótum tímabilsins og náði best fjórða sætinu í Jabra Ladies Open mótinu um miðjan marsmánuð. Hér að neðan má sjá gengi hennar í Suður-Afríku:
| Mót | Sæti |
| Standard Bank Ladies Open | T25 |
| Jabra Ladies Classic | 4 |
| Platinum Ladies Open | T33 |
| ABSA Ladies Invitational | Ekki í gegnum niðurskurð |
Bæði Hulda og Andrea nýta sér reynsluna úr Suður-Afríku til að vinna í sínum leik fyrir komandi tímabil. Þetta verður fyrsta tímabil Huldu sem atvinnukylfingur, en Andrea lék vel á LET Access mótaröðinni síðasta sumar og var á meðal efstu kylfinga stigalistans.


