Íslensku atvinnukylfingarnir Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru báðar á meðal keppenda á ABSA Ladies Invitational mótinu sem fer fram dagana 26.-28. mars í Suður-Afríku. Mótið er hluti af Sunshine mótaröðinni, fer fram á Royal Johannesburg vellinum og er fjórða og síðasta mót þeirra beggja í landinu.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Hulda Clara hefur leik kl. 07:55 að staðartíma á fyrstu holu vallarins. Hún leikur fyrsta hringinn með hinni kanadísku Ashley Chow og hinni sænsku Louise Rydqvist. Báðar voru þær á meðal tíu efstu á Platinum Ladies Open mótinu í síðustu viku, svo reikna má með öflugri spilamennsku frá hollinu.
Hulda hefur leikið flott golf í fyrstu mótum tímabilsins og náði best fjórða sætinu í Jabra Ladies Open mótinu um miðjan mánuð. Hér að neðan má sjá gengi hennar í Suður-Afríku:
| Mót | Sæti |
| Standard Bank Ladies Open | T25 |
| Jabra Ladies Classic | 4 |
| Platinum Ladies Open | T33 |
Andrea hefur leik kl. 08:06 á tíunda teig og leikur með hinni ensku Rosie Belsham og heimakonunni Cara Ford.
Bæði Hulda og Andrea nýta sér reynsluna úr Suður-Afríku til að vinna í sínum leik fyrir komandi tímabil. Þetta verður fyrsta tímabil Huldu sem atvinnukylfingur, en Andrea lék vel á LET Access mótaröðinni síðasta sumar og var á meðal efstu kylfinga stigalistans. Hér að neðan má sjá gengi Andreu í Suður-Afríku:
| Mót | Sæti |
| Standard Bank Ladies Open | Ekki í gegnum niðurskurð |
| Jabra Ladies Classic | T24 |
| Platinum Ladies Open | Ekki í gegnum niðurskurð |


