GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Frábær árangur Guðrúnar
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði jöfn í þriðja sæti á Platinum Ladies Open mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag. Guðrún lék frábært golf síðustu daga og spilaði hringina þrjá á fjórtán höggum undir pari.

Guðrún lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari vallarins. Hún fékk þar þrjá fugla og tapaði ekki höggi. Sláttur Guðrúnar reyndist henni dýrmætur í mótinu, en tölfræði mótaraðarinnar segir hana hafa slegið gífurlega vel. Samkvæmt Guðrúnu sjálfri hitti hún þó ekki allar brautir vallarins á hverjum degi líkt og tölfræði hennar gefur til kynna.

Fyrsti hringur Guðrúnar

Annan hringinn lék Guðrún á 66 höggum, sex undir pari. Frábær hringur, en einungis tveir kylfingar léku á lægra skori en Guðrún þann daginn. Hún fékk sjö fugla og einn skolla á þessum magnaða hring og kom sér upp í sjötta sæti mótsins fyrir lokahringinn.

Frábær hringur Guðrúnar

Lokahringinn lék Íslandsmeistarinn einnig vel og kom í hús á 68 höggum, fjórum undir pari vallarins. Eftir fimm fugla á fyrstu þrettán holunum var Guðrún í mjög góðri stöðu. Sjaldséðir skollar birtust á fjórtándu og sextándu holunum, en hún fylgdi þeim vel eftir með frábærum fuglum á sautjándu og átjándu holunum.

Þetta var fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine mótaröðinni í ár, en hún lék mjög gott golf í Suður-Afríku. Hún stefnir að því að nýta sér þennan góða undirbúning, en LET mótaröðin, sem hún leikur á í sumar, heldur til Suður-Afríku í apríl. Hér að neðan má sjá úrslit Guðrúnar frá síðustu vikum:

MótSæti:
NTT Data Ladies Pro-Am T3
Standard Bank Ladies OpenT23
Jabra Ladies ClassicEkki í gegnum niðurskurð
Platinum Ladies OpenT3

Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir voru einnig á meðal keppenda mótsins.

Hulda Clara endaði mótið jöfn í 33. sæti á fimm höggum undir pari. Þegar leik var frestað á öðrum keppnisdegi var Hulda nokkrum höggum utan við niðurskurðarlínuna, en komst í gegnum niðurskurð eftir frábæra spilamennsku í morgun þegar leik var haldið áfram. Hún lék þær níu holur sem hún átti eftir á fimm höggum undir pari, og tryggði sig áfram með fugli á lokaholunni.

Hulda lék lokahringinn einnig vel. Hún kom í hús á 70 höggum, fékk 2 fugla og var skollalaus.

Hulda Clara á Íslandsmótinu í golfi 2025

Andrea Bergsdóttir var einnig á meðal keppenda en hún náði ekki í gegnum niðurskurð. Hún lék hringi sína á 72-71 höggi og endaði á einu höggi undir pari í heildina.

Hér má sjá úrslit mótsins

Andrea og Hulda verða áfram í Suður-Afríku og leika í ABSA Ladies Invitational mótinu í næstu viku.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ