Íslensku landsliðskylfingarnir Gunnlaugur Árni Sveinsson og Veigar Heiðarsson voru á meðal keppenda á Pauma Valley Invitational háskólamótinu sem fram fór dagana 16.-18. mars.
Mörg sterkustu háskólalið Bandaríkjanna tóku þátt í mótinu. Af þeim tíu liðum sem hafa náð besta árangrinum á þessu skólaári voru sex á meðal þátttökuliða.
Veigar endaði mótið jafn í 34. sæti á einu höggi yfir pari í heildina. Hann lék hringi sína á 72-71-71 höggi. Á lokaholu fyrsta hringsins sló Veigar í af 130m færi fyrir erni, og fyldi þeim árangri eftir með stöðugri spilamennsku á næstu tveimur hringjunum. Mótið var það sterkasta sem Veigar hefur leikið í á sínum háskólaferli, en lið hans úr East Tennessee State skólanum varð 11. í liðakeppni mótsins. Veigar og liðsfélagi hans Richard Saunders voru jafnir með besta einstaklingsskor liðsins.

Gunnlaugur Árni endaði jafn í 65. sæti, á sex höggum yfir pari í heildina. Hann lék hringi sína á 77-72-70 höggum.
Fyrsti hringur mótsins reyndist honum erfiður, en Gunnlaugur spilaði fínt golf á seinni tveimur hringjunum. Lið Gunnlaugs í LSU endaði í 3. sæti liðakeppninnar og heldur stöðu sinni sem eitt allra sterkasta háskólalið Bandaríkjanna.


