GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur Árni
Auglýsing

Gunnlaugur Árni lék vel á fyrsta hring The Hayt háskólamótsins á Sawgrass CC í Flórída í dag. Hann fékk sjö fugla á hringnum og lauk leik á 67 höggum, fimm höggum undir pari vallar. Hann er jafn fjórum öðrum kylfingum í 2. sæti og er einu höggi á eftir William Love sem leiðir mótið.

Staðan í mótinu

Gunnlaugur Árni lék í dag í sama ráshóp og Jackson Koivun sem er langefstur á heimslista áhugakylfinga og endaði þrisvar á meðal sex efstu kylfinganna í mótum á PGA mótaröðinni á síðasta ári. Gunnlaugur var einu höggi betri en Jackson í dag og munu þeir leika aftur saman á morgun og hefja leik kl. 15:13 á íslenskum tíma.

Skóli Gunnlaugs Árna, LSU, leiðir mótið í liðakeppninni á fjórtán höggum undir pari og er tveimur höggum á undan Virginíu og fimm höggum á undan Auburn en þessir skólar eru í fyrstu tveimur sætunum á lista yfir þá skóla sem hafa náð bestum árangri á þessu skólaári.

Staðan í liðakeppninni

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ