GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa lýst yfir vilja til að hefja formlegar viðræður við Golfsamband Íslands um þjóðarleikvang golfíþróttarinnar. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar s.l.

Í bókun bæjaryfirvalda er lögð áhersla á að slíkt framtak geti styrkt stöðu golfíþróttarinnar á landsvísu, aukið aðstöðu til mótahalds og skapað umgjörð sem stenst alþjóðlegar kröfur. Fram kemur að þegar hafi farið fram vönduð undirbúningsvinna á vegum Golfklúbbsins Leynis sem geti orðið mikilvægur grunnur að framtíðarskipulagi vallarins.

Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar í landi Hafnarfjarðar óskaði eftir kynningu frá GSÍ á þjóðarleikvangi í febrúar síðastliðnum. Framkvæmdahópurinn er á vegum bæjarins til að skoða næstu skref með nýjan golfvöll í Hafnarfirði. 

Sjá kynningu á þjóðarleikvangi á Golfþingi.

Golfsamband Íslands fagnar því að vilji sé fyrir hendi hjá bæði Akraneskaupstað og Hafnarfjarðarbæ til áframhaldandi viðræðna um framtíðaraðstöðu golfíþróttarinnar.

Hvað er þjóðarleikvangur í golfi? Líkt og í öðrum íþróttum þá er verið að tala um stað þar sem stærstu golfmótin yrðu leikin í framtíðinni og væri sameiningartákn íslenskra kylfinga í menningarlegu samhengi. Gert er ráð fyrir 18 holu keppnisvelli sem stenst þær kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra golfmóta, ásamt því að vera með innanhúss æfingaaðstöðu fyrir afreksfólk GSÍ og stórt æfingasvæði utanhúss.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ