GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Logi
Auglýsing

Logi Sigurðsson lék á sex höggum undir pari á fyrsta hring Infinitum Championship mótsins á Nordic Golf League í Tarragona á Spáni í dag. Hann fékk einn örn, fjóra fugla og þrettán pör á hringnum og er einu höggi á eftir átta kylfingum sem deila forystunni, þeirra á meðal er Edoardo Molinari sem hefur þrisvar sigrað á Evrópumótaröðinni. Högg dagsins hjá Loga kom strax á annarri holu er hann sló beint ofan í holu af 76 metra færi og fékk glæsilegan örn. 

Dagbjartur Sigurbrandsson lék á fjórum höggum undir pari í dag og hann var ásamt fjórum öðrum kylfingum á besta skori dagsins á Hills/Ruins vellinum. Nítján bestu skorin komu öll á Lakes vellinum í dag. 

Hlynur Bergsson var á tveimur höggum undir pari, Aron Snær Júlíusson á einu höggi yfir pari, Svanberg Addi Stefánsson á fjórum höggum yfir pari, Daníel Ísak á fimm höggum yfir pari og Ólafur Marel Árnason á sex höggum yfir pari. 

Staðan í mótinu

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ