Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýverið undir samning við alþjóðlegu umboðsskrifstofuna Hambric Sports. Meðal þeirra sem fyrirtækið sinnir er besti kylfingur heims, Scottie Scheffler.
Hambric Sports hefur einnig umsjón með mörgum af bestu kylfingum heims á stærstu mótaröðum heims, þar á meðal Brooks Koepka, Dustin Johnson, Si Woo Kim og tvíburabræðurnir Rasmus og Nicolai Højgaard.
Umboðsskrifstofan hefur verið starfrækt í 46 ár og hefur unnið með alls 23 sigurvegurum risamóta til að mynda Phil Mickelson, Justin Leonard, Corey Pavin og Larry Nelson.
Umboðsmaður Gunnlaugs heitir Mark Haastrup og kemur frá Danmörku. Hann hefur starfað fyrir Hambric Sports í 5 ár en hann var sjálfur í samstarfi við fyrirtækið sem atvinnukylfingur. Mark lék í nokkur ár á Evrópumótaröðinni og náði besta árangri árið 2010 þegar hann lenti í þriðja sæti í tveimur mótum á mótaröðinni.
Samningurinn er mikil viðurkenning fyrir Gunnlaug Árna og markar mikilvægt skref á hans ferli. Samstarfið við eina reynslumestu umboðsskrifstofuna í golfheiminum getur á komandi árum opnað á spennandi tækifæri bæði inni á golfvellinum og utan hans.
“Ég er mjög ánægður að vera búinn að taka þessa ákvörðun eftir langt ferli þar sem margar umboðsskrifstofur sýndu mikinn áhuga og ég átti í samskiptum við marga aðila. Mér líst mjög vel á þessa niðurstöðu og ég hef góða tilfinningu fyrir Mark og Hambric Sports enda mikil reynsla að baki. Ég er sannfærður um að ég muni fá góðan stuðning og ég er spenntur fyrir næstu árum með þeim,” segir Gunnlaugur Árni.
Næsta mót Gunnlaugs Árna fer fram á Sawgrass CC í Flórída 7.-9. mars

