Landsliðshópur GSÍ hefur undanfarna daga tekið þátt í tveimur mótum á Global Junior mótaröðinni í Portúgal. Seinna mótið fór fram á Royal Óbidos golfvellinum rétt norðan við Lissabon.
Líkt og í fyrra mótinu voru afar krefjandi vallar- og veðuraðstæður sem settu mikinn svip sinn á mótið. Þátttakendur voru alls 88 og komu frá 17 löndum. Bryndís Eva Ágústsdóttir náði besta árangri í stúlknaflokki er hún hafnaði í 3. sæti. Bryndís lék á 80-73-79 höggum og var á sextán höggum yfir pari í heildina. Hjalti Kristján Hjaltason náði besta árangri í piltaflokki en hann lék á 81-80-72 höggum, var samtals á sautján höggum yfir pari og hafnaði í 4. sæti.
Hópurinn heldur til Íslands á morgun. Næsta keppnisferð landsliðskylfinganna fer einnig fram í Portúgal í lok mars.
