GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Dagbjartur
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, Aron Snær Júlíusson og Hlynur Bergsson hafa lokið keppni á öðru móti ársins á Nordic Golf League mótaröðinni á Spáni. 

Dagbjartur lenti í 8. sæti í fyrra mótinu á Empordá golfsvæðinu og fylgdi því á eftir með því að lenda í 16. sæti í seinna mótinu í dag. Hann lék hringina þrjá á 69-69-71 höggum og var í heildina á sex höggum undir pari.

Aron Snær lék á 78 og 70 höggum og komst ekki í gegnum niðurskurðinn líkt og Hlynur sem lék á 78 og 75 höggum. 

Úrslit mótsins

Nú færa strákarnir sig um set og munu taka þátt í þremur mótum á Infinitum golfsvæðinu í Tarragona. Þar bætast við þeir Daníel Ísak Steinarsson, Logi Sigurðsson, Ólafur Marel Árnason og Svanberg Addi Stefánsson  Fyrsta mótið í seríunni hefst næsta mánudag. 

Upplýsingar um mótið

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ