Landsliðshópur GSÍ er þessa dagana staddur í keppnisferð rétt fyrir norðan Lissabon í Portúgal þar sem keppt er á tveimur mótum á Global Junior mótaröðinni. Hópurinn samanstendur af 21 landsliðskylfingi og tveimur þjálfurum, þeim Axel Bóassyni og Birki Þór Baldurssyni.
Fyrra mótið fór fram á Praia D’El Rey golfvellinum og lauk í gær. Þátttakendur voru alls 100 og komu frá 18 löndum. Aðstæður voru krefjandi í mótinu og skor keppenda bar þess merki. Bryndís Eva Ágústsdóttir náði besta árangri í stúlknaflokki er hún hafnaði í 5. sæti. Keppnin var afar jöfn og spennandi en hún hafði eins högga forystu fyrir lokahringinn. Bryndís lék á 77-76-79 höggum og var þrettán yfir pari í heildina. Gunnar Þór Heimisson og Óliver Elí Björnsson náðu besta árangri í piltaflokki en þeir voru samtals á níu höggum yfir pari og höfnuðu í 12. sæti.
Seinna mótið fer fram á Royal Óbidos golfvellinum og hefst á morgun. Það verður spennandi að fylgjast með okkar flottu landsliðskylfingum.
