GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Dagbjartur
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson hafnaði í 8. sæti á GolfStar Winter Series Dunes mótinu sem fór fram á Empordá golfsvæðinu á Spáni. Mótið er fyrsta mót ársins á Nordic Golf League atvinnumannamótaröðinni, sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki mótaraða í Evrópu í karlaflokki. 

Íslandsmeistarinn lék hringina þrjá á 69-68-69 höggum og var í heildina á átta höggum undir pari. 

Hlynur Bergsson lék á fimm höggum undir pari og endaði í 19. sæti og Aron Snær Júlíusson lék á tveimur höggum yfir pari og endaði í 46. sæti. 

Keppt var á tveimur völlum, Forest og Dunes. Keppendur léku á báðum völlunum fyrstu tvo dagana og léku Dunes völlinn á lokahringnum. Næsta mót hjá þremenningunum hefst á miðvikudaginn en mótið fer einnig fram á Empordá golfsvæðinu. 

Úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ