GSÍ fjölskyldan
Guðrún Brá
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 3. sæti á NTT Data Pro-Am mótinu sem lauk í gær á Fancourt Golf Estate golfsvæðinu í George í Suður-Afríku. 

Mótið sem er hluti af Sunshine Ladies mótaröðinni var stytt í tvo hringi vegna veðurs og lék Íslandsmeistarinn hringina tvo á 73 og 72 höggum og var á einu höggi undir pari í heildina. Guðrún fékk tæplega 1,5 milljónir króna í verðlaunafé fyrir árangurinn í mótinu. 

Úrslit mótsins

Mótið var jafnframt liðakeppni í betri bolta þar sem Guðrún lék með einum áhugakylfingi. Lið Guðrúnar hafnaði í 2. sæti einungis einu höggi á eftir sigurliðinu. 

“Ég er ótrúlega ánægð að hafa byrjað fyrsta mótið á árinu með þessum hætti. Mikil vinna í vetur er klárlega að skila sér. Það voru krefjandi aðstæður á lokahringnum. Það minnti á íslenska vindinn þannig að mér leið vel. Ég vissi að skorið yrði hátt og setti upp leikskipulagið eftir því. Ég var meðvituð að skor í kringum parið kæmi mér langt. Spilamennskan var mjög stöðug og ég var í mörgum góðum fuglafærum á lokaholunum. Það var síðan góð tilfinning að slá upp að stöng á lokaholunni, tryggja fuglinn og um leið þriðja sætið í mótinu,” segir Guðrún Brá.

Guðrún mun alls taka þátt í fjórum mótum á mótaröðinni í Suður-Afríku í vetur áður en hún hefur leik á Evrópumótaröðinni í apríl. Næsta mót fer fram í Cape Town í byrjun mars. 

Haraldur Franklín Magnús lék einnig á NTT Data Pro-Am mótinu en það var hluti af HotelPlanner mótaröðinni. Hann lék á 71 og 70 höggum, var samtals á þremur höggum undir pari og var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 

Úrslit mótsins

Næsta mót hjá Haraldi fer fram í Durban og byrjar á fimmtudaginn. Það er síðasta mótið hjá honum í bili en samtals leikur hann í fjórum mótum í Suður-Afríku í þessari ferð. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ