Eldri kylfingar Golfklúbbs Reykjavíkur halda úti skemmtilegri vetrarhefð og spila saman bingó í aðstöðu klúbbsins. Viðburðurinn er hluti af öflugu vetrarstarfi klúbbsins fyrir félagsmenn 65 ára og eldri.
Bingóið hefur fest sig í sessi sem vinsæll samverustaður eldri kylfinga yfir vetrarmánuðina. Spilað er að jafnaði einu sinni í mánuði frá nóvember og fram í mars, með sérstöku jólabingói í desember og svo páskabingói sem yfirleitt markar lok tímabilsins.

Almennt er fullt út úr húsi og stemningin góð. Boðið er upp á kaffi, kleinur og gos, ásamt því að veglegir vinningar eru veittir í bingóinu sjálfu.
Fyrsta bingóspjaldið kostar 1.000 krónur og hvert spjald umfram það 500 krónur. Tekið er við greiðslum bæði með peningum og korti.
Forsvarsmenn hvetja alla félagsmenn sem náð hafa 65 ára aldri til að mæta og taka þátt!

