GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Landsmót í golfhermum er hafið, en þetta er í fimmta sinn sem mótið fer fram.

Hægt er að taka þátt í mótinu í öllum TrackMan golfhermum landsins og hafa allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ þátttökurétt. Mótið skiptist í þrjár umferðir:

Fyrsta undankeppnin fer fram dagana 7. febrúar – 16. mars. Í henni eru leiknar 18 holur á Korpúlfsstaðavelli (í golfherminum), og komast 48 efstu karlarnir og 24 efstu konurnar áfram í næstu umferð.

Önnur undankeppnin fer fram dagana 17. mars – 20. apríl. Þar leika bestu kylfingar fyrstu umferðarinnar 36 holur á sama velli, og halda tólf bestu karlarnir og tólf bestu konurnar áfram í úrslitakeppnina.

Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 25. apríl í Íþróttamiðstöð GKG. Leiknar eru þar 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá
farandbikar.

  1. sæti: 130.000 kr.
  2. sæti: 50.000 kr.
  3. sæti: 30.000 kr.
Korpúlfsstaðavöllur

Mótið hefur heppnast afar vel síðustu ár og verður sýnt frá úrslitakeppninni í beinni útsendingu, bæði á miðlum GSÍ og í sjónvarpi.

Landsmótið er mót sem GSÍ styður við sem hluta af öðru mótahaldi sambandsins en GKG er framkvæmdaraðili mótsins.

Hér að neðan má nálgast keppnisskilmála mótsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ