GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Haraldur Franklín Magnús
Auglýsing

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hefur leikið frábært golf á fyrstu tveimur keppnisdögum CIRCA Cape Town Open mótsins í Suður-Afríku. Mótið er annað mót tímabilsins á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu.

Haraldur lék fyrsta hring mótsins á 68 höggum, eða fjórum undir pari vallarins. Eftir skolla á annari holu hrökk Haraldur í gang og fékk fimm fugla á átta holu kafla um miðjan hring. Að fyrsta hring loknum var Íslandsmeistarinn fyrrverandi jafn í 26. sætinu.

Annan hringinn lék Haraldur svo gott sem eins, og fékk aftur fimm fugla. Eini skolli dagsins kom á fimmtándu holu, en Haraldur svaraði vel fyrir sig og fékk fugla á holum sautján og átján.

Hringir Haralds

Þegar mótið er hálfnað situr Haraldur því jafn í áttunda sætinu ásamt fjórum öðrum kylfingum á átta höggum undir pari. Einungis þrjú högg eru á milli okkar manns og heimamannsins Trevor Fisher Jnr., sem leiðir mótið.

Leikið er á Royal Cape Golf Club í Höfðaborg, sem er höfuðborg Suður-Afríku. Völlurinn er par 72 og 6.121m langur. Í viðtali fyrir mótið sagðist Haraldur spenntur fyrir því að spila völlinn, þar sem aðstæður hentuðu honum vel. Hitinn er töluvert lægri en í mótinu sem fór fram í síðustu viku og vindurinn meiri.

Fallegt svæði

Nick Carlson, GM, var einnig á meðal keppenda mótsins, en hann náði ekki í gegnum niðurskurð.

Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ