Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hefur leik á CIRCA Cape Town Open mótinu í Suður-Afríku á morgun. Mótið er annað mót tímabilsins á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu.
Leikið verður á Royal Cape Golf Club í Höfðaborg, sem er höfuðborg Suður-Afríku. Völlurinn er par 72 og 6.121m langur. Í viðtali fyrir mótið sagðist Haraldur spenntur fyrir því að spila völlinn, þar sem aðstæður hentuðu honum vel. Hitinn er töluvert lægri en í mótinu sem fór fram í síðustu viku og vindurinn meiri.

Haraldur hefur leik kl. 07:10 að staðartíma og er í holli með Spánverjanum Victor Pastor og hinum ítalska Lorenzo Scalise. Þetta er annað mótið í fjögurra móta törn Haralds í Suður-Afríku.

Nick Carlson, GM, er einnig á meðal keppenda mótsins, en hann lék frábært golf á síðasta tímabili og endaði á meðal 40 efstu kylfinga mótaraðarinnar. Nick náði í gegnum niðurskurð í fyrsta móti tímabilsins og lauk leik jafn í 39. sætinu.
