GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Skráning er hafin í N1 mót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 sem fer fram í september. Mótið er það síðasta á golfsumrinu 2025. Skráningu lýkur þriðjudaginn 2. september kl. 23:59.

Unglingamótaröðin

N1 Unglingamót 15-18 ára verður haldið dagana 6.–7. september á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið er 54 holur og jafnframt lokamót 18 ára og yngri á Stigamótaröð GSÍ og Golf14 á tímabilinu.  

Í flokki 15-18 ára er keppt í höggleik án forgjafar og verða lykkjurnar Sjórinn/Áin leiknar. Að 36 holum loknum er leikmönnum fækkað um 30% og því 70% þeirra leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni á sunnudegi.

Á laugardeginum verða allir ræstir út af öllum teigum samtímis kl.8:00 og svo aftur kl.14:00, sömu ráshópar halda sér á fyrsta og öðrum hring. Á milli umferða verður hamborgaraveisla fyrir alla keppendur. Á sunnudegi er ræst út frá kl.8:00 eftir skori.

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan

Golf 14

Flokkur 13-14 ára í Golf 14 leikur höggleik án forgjafar dagana 6. og 7. september. Alls eru leiknar 36 holur, 18 á hvorum keppnisdegi. Lykkjurnar Landið/Landið verða leiknar báða dagana. Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk og kvk er 32 og hámarksforgjöf í flokki 12 ára og yngri er 45.

Keppt er samkvæmt gildandi móta- og keppendareglum GSÍ.

Flokkur 12 ára og yngri í Golf 14 leika 9 holur á Landinu, laugardag og sunnudag.

Að hring loknum á laugardegi verður boðið upp á hamborgaveislu fyrir keppendur.

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ