Golfklúbburinn Keilir leitar að metnaðarfullum og skipulögðum einstakling í starf íþróttastjóra. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem réttum aðila gefst kostur á að móta metnaðarfullt íþróttastarf.
Íþróttastjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja framgang og framþróun barna-, unglinga- og félagsstarfs í samræmi við stefnu klúbbsins. Íþróttastjóri hefur yfirumsjón með að móta faglegar áherslur og golfþjálfunar í samstarfi við þjálfara.
Leitað er að einstakling sem er með leiðtogahæfileika til að móta liðsheild hjá þjálfurum og iðkendum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á íþróttamálum Keilis ásamt öllum þjálfaramálum.
 - Yfirsýn og umsjón með faglegu skipulagi þjálfunar.
 - Náið samstarf með öðru starfsfólki Keilis að uppbyggingu golfíþróttarinnar
 - Umsjón með samningagerð og val á birgjum og styrktaraðilum.
 - Markaðssetning námskeiða og æfinga.
 - Uppfærslur á heimasíðu Keilis og öðrum miðlum.
 - Fjölbreytt samskipti við helstu hagaðila.
 - Ábyrgð og umsjón með æfinga- og félagakerfinu Sportabler
 - Önnur tilfallandi verkefni.
 
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
 - Áhugi og þekking á golfi.
 - Ögun í vinnubrögðum.
 - Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
 - Frumkvæði, metnaður, framsýni, sjálfstæði og leiðtogahæfni.
 - Góð almenn tölvukunnátta.
 - Góð íslenskukunnátta og færni í ensku.
 
Í umsókn um starfið þarf að fylgja ferilsskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni til að gegna starfinu. Umsóknir skulu berast á netfangið olithor@keilir.is, fyrir 15. október n.k.
								
				
				
				
				
				
				
								
                                
                                
                                
                                
                                
                                
