Í síðustu viku lauk héraðsdómaranámskeiði GSÍ fyrir árið 2026.
Námskeiðið var haldið á netinu þar sem 139 þátttakendur voru skráðir.
Fyrir þau sem vildu var boðið upp á próf til að öðlast réttindi héraðsdómara. Alls tóku 60 prófið, þar sem 52 stóðust prófið og fengu héraðsdómararéttindin.
Námskeiðið í ár var haldið í formi fyrirlestra í fjarfundi, en milli 30 og 40 sóttu erindin “í beinni” þegar mest var. Mörg skoðuðu upptökur fyrirlestranna á þeim tíma sem þeim hentaði best, áhorf á upptökur voru frá 153 upp í 267. Allir fyrirlestrar voru teknir upp og gerðir aðgengilegir öllum skráðum þátttakendum.
Þessi námskeið eru haldin árlega af dómaranefnd GSÍ og henta bæði byrjendum og lengra komnum til að læra golfreglunar. Engin krafa er gerð um próftöku þegar námskeiðin eru sótt. Þá fylgir ekki heldur dómgæsluskylda þótt þátttakendur standist prófið, nema ætlunin sé að halda réttindum við, þá þarf að dæma og skila inn skýrslum árlega til dómaranefndar.
Dómaranefnd vill þakka öllum sem tóku þátt í þessum námskeiðum í ár og vonast til þess að sjá sem flest á næsta ári.
| Nafn | Golfklúbbur |
|---|---|
| Albert Ómar Guðbrandsson | GVS |
| Alfreð Andri Alfreðsson | GM |
| Andrés Ævar Grétarsson | GÞ |
| Ari Thorlacius | GKG |
| Arnþór Ingi Jónsson | GM |
| Atli Haukur Arnarsson | GR |
| Berglind Stefanía Jónasdóttir | GKG |
| Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir | GR |
| Bjarni Aðalgeirsson | GR |
| Bjarni Geir Viðarsson | GM |
| Brandur Matthías Sigfússon | GSE |
| Brynjar Ingólfsson | GSE |
| Daði Kolbeinsson | GR |
| Davíð Björgvinsson | GM |
| Dýrmundur Helgi R. Óskarsson | GOS |
| Egill Anton Hlöðversson | GÞ |
| Einar Ingimundarson | GA |
| Elísabet Sæmundsdóttir | GL |
| Geir Steindórsson | GSE |
| Gísli Vagn Jónsson | GK |
| Grímur Ásgeir Björnsson | |
| Guðmundur Fannar Vigfússon | GKB |
| Guðmundur Halldór Jóhannsson | GB |
| Guðrún Íris Úlfarsdóttir | GR |
| Gunnar Leo Gunnarsson | GO |
| Hákon Davíð Halldórsson | GK |
| Hallgrímur Þór Axelsson | GÞ |
| Heiðar Bergmann Heiðarsson | GK |
| Helga Melkorka Óttarsdóttir | GR |
| Hjördís Bára Gestsdóttir | GÖ |
| Hulda Clara Gestsdottir | GKG |
| Jens Valur Ólason | GR |
| Jóhann Jóhannsson | GKG |
| Jón Arnar Guðmundsson | GK |
| Jónína Birna Sigmarsdóttir | NK |
| Karl Guðmundsson | GK |
| Kristín Jónsdóttir | GK |
| Kristján Ólafsson | GR |
| Magdalena Berglind Björnsdóttir | GÓS |
| Methúsalem Hilmarsson | GH |
| Nína Birna Þórsdóttir | GBR |
| Nína Kristjánsdóttir | GB |
| Oliver Ómarsson | GKG |
| Pétur Geir Grétarsson | GK |
| Rakel Þorsteinsdóttir | GR |
| Sigurður Bjarki Ólafsson | GOS |
| Sigurður Freyr Sigurðarson | GA |
| Sigurjón Sigurjónsson | GKG |
| Sindri Már Sigfússon | GSE |
| Snæþór Vernharðsson | GA |
| Snorri Jökull Egilsson | GÞ |
| Stefán Þór Arnarson | GHH |
| Þórður Reyr Arnarson | GÖ |

