Landsliðshópur GSÍ kom saman á Akureyri um síðustu helgi til æfinga sem Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, stýrði. Kylfingarnir æfðu stíft frá morgni til kvölds í glæsilegri æfingaaðstöðu Golfklúbbs Akureyrar. Aðspurður sagðist Ólafur ánægður með helgina.
„Við erum mjög þakklát fyrir frábærar móttökur og þennan mikla stuðning frá Golfklúbbi Akureyrar. Það er eftirtektarvert að fylgjast með hversu mikla ástríðu klúbburinn hefur að búa til þessa stórkostlegu aðstöðu fyrir sitt öfluga afreksstarf og sína klúbbfélaga. Þetta var sannkölluð maraþon æfingahelgi þar sem æfingar stóðu yfir frá 9-21 á laugardeginum og frá 10-18 á sunnudeginum. Landsliðskylfingar halda til Portúgals í keppnisferð á fimmtudaginn og þetta var því kjörið tækifæri að undirbúa og stilla saman strengi fyrir ferðina. Okkar landsliðskylfingar hafa svo sannarlega notið þess að æfa hér undanfarna tvo vetra og var mikil ánægja með helgina.“








