Skráning er hafin í N1 mót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 sem fer fram í september. Mótið er það síðasta á golfsumrinu 2025. Skráningu lýkur þriðjudaginn 2. september kl. 23:59.
Unglingamótaröðin
N1 Unglingamót 15-18 ára verður haldið dagana 6.–7. september á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið er 54 holur og jafnframt lokamót 18 ára og yngri á Stigamótaröð GSÍ og Golf14 á tímabilinu.
Í flokki 15-18 ára er keppt í höggleik án forgjafar og verða lykkjurnar Sjórinn/Áin leiknar. Að 36 holum loknum er leikmönnum fækkað um 30% og því 70% þeirra leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni á sunnudegi.
Á laugardeginum verða allir ræstir út af öllum teigum samtímis kl.8:00 og svo aftur kl.14:00, sömu ráshópar halda sér á fyrsta og öðrum hring. Á milli umferða verður hamborgaraveisla fyrir alla keppendur. Á sunnudegi er ræst út frá kl.8:00 eftir skori.
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan
Golf 14
Flokkur 13-14 ára í Golf 14 leikur höggleik án forgjafar dagana 6. og 7. september. Alls eru leiknar 36 holur, 18 á hvorum keppnisdegi. Lykkjurnar Landið/Landið verða leiknar báða dagana. Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk og kvk er 32 og hámarksforgjöf í flokki 12 ára og yngri er 45.
Keppt er samkvæmt gildandi móta- og keppendareglum GSÍ.
Flokkur 12 ára og yngri í Golf 14 leika 9 holur á Landinu, laugardag og sunnudag.
Að hring loknum á laugardegi verður boðið upp á hamborgaveislu fyrir keppendur.
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan