GSÍ fjölskyldan

Golfhreyfingin á Íslandi árið 2026

Golfsambandið tekur saman tölfræði og lykiltölur fyrir golfklúbba, samstarfsaðila og aðra hagsmunaaðila. Þessar tölur sýna umfang, þróun og samsetningu golfhreyfingarinnar á Íslandi. Ásókn í að leika golf á síðustu árum hefur verið mikil.

Um 33.600 kylfingar eru skráðir í 63 golfklúbba víðs vegar um landið árið 2026 sem var 14,4% aukning á milli ára. Þetta er aukning um 4.000 kylfinga frá fyrra ári. Golfsambandið er elsta og næst fjölmennasta íþróttasambandið innan íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Þátttaka í golfi hefur vaxið hratt á síðustu árum. Þúsundir stunda golf í hermum, á æfingasvæðum og púttvöllum sem hefur aukið aðgengi að íþróttinni. Þessi þróun endurspeglast í auknum tekjum golfklúbba og vexti í tengdum greinum á borð við golfverslun og tæknilausna. Golfhermar og æfingaaðstaða eru orðnir mikilvægur hluti af heildarmyndinni og skapa tekjur allt árið um kring. Beint hagspor golfhreyfingarinnar nemur tæpum 12 milljörðum króna á ári. Nánar má lesa um hagræn áhrif Golfhreyfingarinnar á vef KPMG.

Heildarútgjöld íslenskra kylfinga eru að jafnaði 560.000 krónur á ári. Þar af fara um 90.000 kr. í beinan kostnað við að geta leikið golf, um 140.000 kr. í félagsgjöld, en stærsti hlutinn eða um 330.000 krónur í aukakostnað á borð við búnað, fatnað og golfferðir. 

Golf hefur einnig orðið sífellt mikilvægari þáttur í ferðaþjónustu. Ferðamennska tengd golfi veltir um 800 milljónum króna á ári og að 15.000 gistinætur séu seldar árlega beinlínis vegna golfleiks. Erlendir kylfingar skila golfklúbbum um 155 milljónum króna á ári og eyða að jafnaði um 60% meira en almennir ferðamenn. Þá fara um 8.000 íslenskir kylfingar í golfferðir árlega sem skilar íslenskum ferðaskrifstofum tekjum á bilinu 2,5–2,8 milljarða króna.

Golfáhrifin ná langt út fyrir golfvöllinn. Þau birtast í atvinnusköpun, gjaldeyristekjum og öflugri ferðaþjónustu. Samkvæmt meðalspá er gert ráð fyrir að um 40.000 kylfingar verði skráðir í golfklúbba árið 2030.

15% skráðra kylfinga eru börn og unglingar

Það setur Ísland í efstu sæti í Evrópu yfir hlutfall 18 ára og yngri skráð í golfklúbba
 

 

Golfhreyfingin á Íslandi sett í samhengi

Golf er íþrótt, lífsstíl og iðnaður. Golfið eykur jákvætt á heilbrigði, hagkerfið og umhverfið. Árið 2025 léku 112,2 milljónir manna golf í einhverri mynd í þeim 148 löndum sem heyra undir The R&A, að Bandaríkjunum og Mexíkó undanskildum.

Í Evrópu árið 2025 voru 4,9 milljónir kylfinga skráðir í golfklúbba en áætlað er að um 40.5 milljónir evrópubúa hafi leikið golf.

Ef við myndum deila fjölda skráðra kylfinga á íbúafjölda þá fáum við út að 6,2% íslendinga er í golfklúbbum sem er 1. sæti í Evrópu. Frá árinu 2020 hefur orðið hlutfallslega mesta fjölgun á kylfingum á Íslandi og Noregi ef öll evrópulöndin eru skoðuð.

Börn og unglingar sem eru 18 ára og yngri eru að meðaltali 7% af öllum skráðum kylfingum í Evrópu. Ísland er eitt af fáum löndum í Evrópu með yfir 15% af öllum skráðum kylfingum sem börn og unglingar.

Sjá samanburðarskýrslu EGA árið 2025

Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ