GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Þrír íslenskir kylfingar taka þátt í Evrópumeistaramóti einstaklinga 50+ sem fram fer dagana 12.-14. júní á Cornelia Golf Club í Belek, Antalya í Tyrklandi. Keppendur frá 32 löndum eru skráðir til leiks á þessu 30. Evrópumeistaramóti í flokki karla og kvenna.

Fylgjast með skori

Fyrir Íslands hönd keppa þau Sigurbjörn Þorgeirsson, Einar Long og Ragnheiður Sigurðardóttir.

Í færslu Ragnheiðar á Facebook kemur fram að völlurinn sé krefjandi og hitinn í Tyrklandi sé mikill þessa dagana, yfir 30 gráður. Grínin eru hörð og mikið landslag í þeim, sem gerir það bæði erfitt að slá inná og pútta.

Alls taka 93 karlar og 48 konur þátt í mótinu sem leikið er yfir 54 holur. Eftir 36 holur verður skorið niður, þar sem 54 efstu karlarnir og 33 efstu konurnar halda áfram leik.

Meðal keppenda í karlaflokki er sigurvegarinn frá síðasta ári, Rodrigo Lacerda Soares frá Frakklandi. Einnig eru þrír fyrrum meistarar með.

Á meðal kvennanna eru margir sterkir keppendur, þar á meðal Macarena Campomanes frá Spáni sem hefur sigrað mótið þrisvar sinnum áður og ríkjandi meistari, Annick Riff frá Belgíu, sem einnig sigraði í flokki 60 ára og eldri í fyrra.

Við munum fylgist með framvindu mótsins á næstu dögum og óskum íslensku keppendunum góðs gengis.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ