Infinitum Championship mótið á Nordic Golf League lauk á Spáni í gær. Mótið var annað mótið af þremur sem fer fram á Infinitum golfsvæðinu í Tarragona. Sjö íslenskir kylfingar voru meðal þátttakenda og komust þrír af þeim í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.
Hlynur Bergsson lenti í 21. sæti en hann lék á 67-68-66 höggum og var samtals á tíu höggum undir pari. Logi Sigurðsson lék á 65-69-68 höggum og Dagbjartur Sigurbrandsson lék á 65-68-69 höggum og voru þeir báðir samtals á níu höggum undir pari og höfnuðu í 28. sæti.
Aron Snær Júlíusson, Svanberg Addi Stefánsson, Daníel Ísak Steinarsson og Ólafur Marel Árnason komust ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.
Næsta mót og jafnframt síðasta mótið í bili á Nordic Golf League hefst á morgun. Mótaröðin fer svo aftur af stað eftir mánuð en þá fara fram þrjú mót í röð í Póllandi.

