GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Guðrún Brá, Hulda Clara og Andrea
Auglýsing

Andrea Bergsdóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir hefja leik á morgun á Jabra Ladies Classic mótinu á Sunshine atvinnumannamótaröðinni í Suður-Afríku. Mótið fer fram á Killarney CC golfvellinum í Jóhannesarborg.

Guðrún Brá hafnaði í 23. sæti á Standard Bank Ladies mótinu sem lauk í síðustu viku á fimm höggum yfir pari og Hulda Clara lenti í 25. sæti á sex höggum yfir pari. Andrea komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. 

Guðrún Brá tók jafnframt þátt í einu móti á mótaröðinni í febrúar þar sem hún náði frábærum árangri. Hún hafnaði í 3. sæti í NTT Data Ladies Pro-Am mótinu og fékk þá tæplega 1,5 milljónir króna í verðlaunafé. 

Andrea á rástíma í fyrramálið kl. 05:00 á íslenskum tíma og Hulda Clara kl. 05:11. Guðrún Brá hefur svo leik kl. 09:22. 

Rástímar og staðan í mótinu

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ