Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2025 dagana 30. maí-1. júní. Mótið er þriðja mótið á GSÍ stigamótaröðinni á þessu tímabili.
Skráningu lýkur mánudaginn 26. maí kl. 23:59.
Keppnisskilmálar:
Keppnisfyrirkomulag – Höggleikur án forgjafar, 54 holur.
Mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ. Leikið er samkvæmt reglugerð um stigamót GSÍ, almennum
keppnisskilmálum GSÍ og almennum staðarreglum GSÍ, auk þessara viðbóta við keppnisskilmála og viðbóta við staðarreglur.
Flokkar – Keppt er í karlaflokki (63) og kvennaflokki (53).
Þátttökuréttur – Hámarksfjöldi keppenda er 96. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki. Þó skulu að lágmarki 25% af hámarksfjölda keppenda fá þátttökurétt í hvorum flokki. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.
Niðurskurður – Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram. Einnig skulu leikmenn ætíð fá að halda áfram keppni séu þeir 10 höggum eða minna á eftir þeim leikmanni sem er í 1. sæti.
Rástímar og ráshópar – Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl. 15:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori.
Ítarlegri keppnisskilmála má finna í hlekknum hér að ofan.