Stór hópur íslenskra afrekskylfinga leikur í Sand Valley Open mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 9.-11. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Íslensku kylfingarnir eru:
- Aron Snær Júlíusson, GKG
- Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
- Daníel Ísak Steinarsson, GK
- Hlynur Bergsson, GKG
- Logi Sigurðsson, GS
- Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
- Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Mótið er leikið á Championship vellinum á Sand Valley Golf Resort svæðinu, en völlurinn er 6546 metrar af öftustu teigum.

Þetta er fyrsta mót Skúla á mótaröðinni, en hinir kylfingarnir búa allir yfir mikilli reynslu á þessu sviði. Hlynur Bergsson sigraði m.a. eitt mót á síðasta tímabili, þegar hann lék á tólf höggum undir pari á Forsbacka Open mótinu í Svíþjóð.
Dagbjartur Sigurbrandsson, ríkjandi Íslandsmeistari karla í golfi, hefur verið iðinn á árinu og lék í öllum fimm mótum mótaraðarinnar í febrúar og mars. Hann spilaði þar gott golf og situr sem stendur í 26. sæti stigalistans.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
