Íslensku vefverðlaunin fóru fram í 25. sinn í gær, fimmtudaginn 26. mars 2026, í Silfurbergi í Hörpu.
Samtökum vefiðnaðarins bárust í ár 220 innsendingar veflausna sem kepptu um titla á borð við fyrirtækjavef ársins, söluvef ársins og efnis- og fréttaveitu ársins – en aðeins 16 lausnir hrepptu verðlaun.
Íslenska golfvefsíðan Rástímar.is stóð uppi sem sigurvegari í flokki gæluverkefna á hátíðinni. Vefsíðan hefur vaxið jafnt og þétt frá upphafi, en þar er meðal annars hægt að finna og bóka lausa tíma í golherma, golfkennslu og í golfmót.
Elías Nökkvi Gíslason, stofnandi Rástímar.is, segir verðlaunin mikinn hvata og stefnir á umfangsmiklar uppfærslur á næstu mánuðum.
„Þetta er nátturlega gríðarleg viðurkenning fyrir alla þessa vinnu sem hefur verið lögð í verkefnið og þetta er mjög góður hvati til þess að halda áfram. Næst á dagskrá er að gera persónulegri upplifun á vefnum með tengingu við golfbox. Þá geta kylfingar verið með yfirlit yfir sína velli og vinavelli og sömuleiðis sín mót. Við stefnum á að stórbæta upplifunina við að velja tíma og bóka á vefnum og svo erum við einnig að fara bæta inn svokallaðri „pay and play“ þjónustu sem verður virkilega skemmtilegt!“

Það er ánægjulegt að sjá verkefni úr íslenska golfheiminum fá viðurkenningu á við þessa, og óskum við Elíasi innilega til hamingju með alla hans flottu vinnu. Hér að neðan má sjá úrslitin úr flokki gæluverkefna ársins:
Gæluverkefni ársins
Ccrch </> playground
Favorit.is
Minna – fyrir þig og umhverfið
Rástímar.is – Sigurvegari
Safe Space – tækni sem styrkir teymi



