GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslenskir atvinnu- og afrekskylfingar hafa verið að spila gott golf á alþjóðlegum vettvangi undanfarið.

Kylfingarnir okkar leika á mótaröðum um alla Evrópu og er gaman að fylgjast með gengi þeirra og ferðalögum. Í mótavaktinni eru tekin saman mót vikunnar, farið yfir úrslit og spáð fyrir gengi helgarinnar.

LET Access Mótaröðin

Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hefja leik á Santander Golf Tour mótinu á LET Access mótaröðinni í dag. Mótaröðin er stigi fyrir neðan Evrópumótaröðina (LET) og getur gott gengi opnað alls kyns dyr í golfheiminum.

108 kylfingar hefja leik í mótinu, en eftir tvo hringi halda einungis efstu 45 kylfingarnir áfram leik. Leiknar eru 54 holur í mótinu og er verðlaunaféð 45.000 evrur, eða um 6.5 milljón króna. 14 fyrrum sigurvegarar á mótaröðinni eru með í mótinu, og verður því sterkur keppendalisti.

Ragnhildur og Andrea hafa verið duglegar að taka þátt í mótum tímabilsins, en Ragnhildur situr í 35. sæti stigalistans og Andrea í því 55.

Veðrið er gott og aðstæður sömuleiðis, líkt og sjá má á Instagram reikningi Andreu frá æfingahringnum í gær.

Slegið yfir vatn á þessari par 3 holu

Hér er hægt að fylgjast með stöðu mótsins

Nordic Golf League

Tveir íslenskir kylfingar taka þátt á Smørum Open mótinu sem hófst í gær. Það eru þeir Sigurður Arnar Garðarsson og Aron Snær Júlíusson, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi. Mótið er haldið í Danmörku og er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.

Sigurður lék vel á fyrsta hring, og lauk leik á þremur höggum undir pari, jafn í 24. sæti mótsins.

Aron Snær lék sinn fyrst hring á tveimur höggum undir pari og er jafn í 40. sæti.

Þeir félagarnir halda leik áfram næstu tvo dagana og er hægt að fylgjast með skori mótsins í hlekk hér að neðan.

Skoða skor

HotelPlanner Tour

Nick Carlson, kylfingur GM, hóf leik í dag á Challenge de Cadiz mótinu á HotelPlanner Tour. Mótið fer fram á Iberostar Real Golf Novo Sancti Petri, sem er mörgum íslenskum kylfingum kunnugur.

Nick er með fullan þátttökurétt á mótaröðinni og hefur leikið í átta mótum á tímabilinu og situr í 62. sæti stigalista mótaraðarinnar.

Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ