Allt á einum stað!
Mitt Golf appið var þróað í samstarfi við GolfBox og Danska Golfsambandið. Með nýja appinu fæst bæði betri notendaupplifun og auknir möguleikar fyrir golfhreyfinguna til framtíðar.
Allar þær aðgerðir sem kylfingar eru vanir að nota verða áfram aðgengilegar í Mitt Golf. Hægt er að smella „GolfBox“ í valmynd og þá eru notendur komnir í flestar aðgerðir sem þau þekkja sem dæmi skorskráningu eða að staðfesta sem ritari.

Öll virkni GolfBox-appsins frá því í fyrra er innbyggð í appið og hægt er að nálgast hana á sama hátt og áður með því að smella á GolfBox.
Allt þetta og meira til geturðu gert í appinu:
- bókað rástíma í GolfBox
- lesið fréttir frá golfklúbbnum þínum
- lesið nýjustu fréttir af Golf.is
- skoðað forgjöfina þína og helstu útreikninga
- skoðað mótayfirlit
- skoðað stigalista og næstu mót GSÍ
- fletta upp á golfreglunum á íslensku
- fengið tilkynningar frá golfklúbbum eða GSÍ
Heimaklúbburinn þinn getur sent þér skilaboð beint í appið t.d. um viðhald á golfvellinum, tilboð, viðburði eða annað sambærilegt.
Appið er ætlað öllum meðlimum í golfklúbbum með virka aðild. Ef þú lendir í vandræðum með innskráningu skaltu athuga hvort þú getir skráð þig inn á vefnum golf.is, það er sama innskráning.
Ef þú hefur gleymt lykilorðinu þínu er hægt að endurstilla það. Í appinu er hlekkur fyrir „gleymt lykilorð“ sem sendir tölvupóst til að stofna nýtt. Einnig er hægt að nota þennan hlekk: https://golfbox.golf/#/ForgotPassword
Tæknileg vandamál og almennar ábendingar má senda á hjalp@golf.is. Þetta netfang er þó eingöngu ætlað til móttöku ábendinga en ekki til beinna samskipta.
Náðu þér í nýja appið okkar fyrir Android og Apple!
Spurt og svarað
Golfsamband Íslands hefur stigið eitt skref enn í stafræna framtíð með nýja appinu „Mitt Golf“ sem er sniðið að þörfum golfhreyfingarinnar. Appið er hannað til að einfalda lífið bæði fyrir golfklúbba og kylfinga með fjölbreyttum möguleikum.
„Mitt Golf“ er opin og sveigjanleg lausn. Appið er þróað þannig að hægt verður að velja á milli mismunandi upplýsingakerfa án mikillar fyrirhafnar. Það er byggt á opnum grunni sem getur tengst ýmsum tæknilausnum og leggur þannig grunn að einfaldari stafrænni þróun og samþættingu fyrir golfklúbba í framtíðinni.
Appið opnar nýjar leiðir í samskiptum milli golfklúbba og meðlima. Golfklúbbar geta deilt fréttum, uppfærslum og mikilvægum tilkynningum beint í gegnum appið, sem tryggir að upplýsingar berist hratt og skilvirkt til allra. Þetta getur náð yfir allt frá fréttum, upplýsingum um mót eða viðhald vallarins.
Fyrir kylfinga verður appið ómissandi verkfæri sem safnar saman öllum helstu upplýsingum og virkni á einn stað. Þar má finna stafrænt kort, forgjöf, fréttir, mótayfirlit og aðgang að golfreglum.
Auk núverandi virkni er verið að skoða frekari þróun appsins. Þar á meðal er möguleg innleiðing á beinni skráningu skorkorta og að opna appið fyrir notkun þeirra sem ekki eru meðlimir í golfklúbbi. Markmiðið er að gera íþróttina aðgengilegri og er þetta eitt skref í þá átt.
Ef þú lendir í því að GolfBox hnötturinn er lengi að snúast þegar þú smellir á GolfBox eða aðra síðu, getur þú prófað að smella aftur á heim (húsið) og opnað GolfBox aftur. Þá ætti síðan að uppfærast hraðar.
Ef þú ert meðlimur í tveimur eða fleirri golfklúbbum þá þarftu stundum að bóka rástíma með annari aðild en að heimaklúbbnum. Aðildin í appinu miðast við heimaklúbbinn.
Það er ekki hægt að skipta um aðild í appinu!
Farðu þess í stað í GolfBox í appinu og notaðu þar „skipta um klúbb“ virkni áður en þú bókar rástíma.
Sjá leiðbeiningar:
Appið er stutt á eldri símum með iOS 16 og Android 12 og getur virkað á iOS 15.6 (iPhone 7) og Android 9. Símar sem eru eldri en þetta og/eða ekki snjallsímar eru því miður ekki studdir.
Ef þú ert með ábendingar er þér alltaf velkomið að hafa samband við þjónustuver okkar á hjalp@golf.is