GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Sigurður Arnar og Logi
Auglýsing

Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar Garðarsson léku frábært golf á Sand Valley Open mótinu í Póllandi sem lauk í dag. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.

Stór hópur íslenskra afrekskylfinga gerði sér ferð til Póllands, en Logi og Sigurður voru þeir einu sem náðu í gegnum niðurskurðinn. Báðir sækja þeir sér því dýrmæt stig á stigalista mótaraðarinnar, en fimm efstu kylfingarnir í lok tímabils vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni.

Sigurður var á meðal efstu kylfinga frá fyrsta hring. Hann hóf mótið af krafti og leit aldrei um öxl. Spilamennskan var stöðug og lék Sigurður hringi sína á 69-70-71 höggi og lauk leik á sex undir pari í heildina.

Par 4 holurnar reyndust Sigurði vel, en þar var hann með næstbesta meðalskor allra kylfinga (3.80).

Sigurður fékk fjóra fugla á hverjum hring mótsins

Logi lék hringi sína á 73-70-67 höggum og lauk einnig leik á sex undir pari í heildina. Logi bætti sig á hverjum degi og sótti meðal annars sjö fugla á lokahringnum, sem hann lék fimm undir pari.

Einungis örfáir kylfingar sóttu fleiri högg á völlinn en Logi, sem fékk þrettán fugla og einn örn í mótinu.

Fuglaveisla Loga

Íslenski hópurinn fer ekki langt, en næsta mót er á sama svæði og hefst eftir tvo daga. Það verður spennandi að fylgjast áfram með gengi okkar manna.

Hér að neðan má sjá skor allra íslensku keppendanna.

KlúbburKylfingurSkorSæti
GKGAron Snær Júlíusson73 – 76 (+5)MC
GRDagbjartur Sigurbrandsson74 – 73 (+3)MC
GKDaníel Ísak Steinarsson81 – 78 (+15)MC
GKGHlynur Bergsson71 – 80 (+7)MC
GSLogi Sigurðsson73 – 70 – 67 (-6)T8
GKGSigurður Arnar Garðarsson69 – 70 – 71 (-6)T8
GKGSkúli Gunnar Ágústsson79 – 74 (+9)MC

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ