Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Daníel Ísak Steinarsson, Hlynur Bergsson, Logi Sigurðsson, Ólafur Marel Árnason og Svanberg Addi Stefánsson keppa á þriðja móti ársins á Nordic Golf Leageu mótaröðinni á Spáni. Mótið er fyrsta mótið af þremur sem fer fram á Inifinitum golfsvæðinu í Tarragona.
Öðrum keppnisdegi var að ljúka og var Logi sá eini af sjömenningunum sem komst í gegnum niðurskurðinn. Logi var í næstsíðasta ráshóp dagsins og var tveimur höggum frá niðurskurðarlínunni fyrir lokaholuna sem er 493 metra löng par 5 hola. Hann átti frábært upphafshögg á miðja braut og sló svo annað höggið sitt rúman metra frá stöng af 190 metra færi sem hann setti svo ofan í holu. Glæsilegur örn og Logi mun leika lokahringinn í mótinu á morgun og freista þess að vinna sig upp skortöfluna. Hann er jafn í 45. sæti eftir tvo hringi á 69 höggum, samtals á tveimur höggum undir pari.
