GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Embla Hrönn, Bryndís Eva, Óliver Elí og Valur Snær
Auglýsing

Tuttugu íslenskir landsliðskylfingar voru á meðal keppenda í Spring Junior Games móti Global Junior Golf í Portúgal. Mótið var það fyrra af tveimur í keppnisferð hópsins í Portúgal.

Spring Junior Games mótið var leikið á PGA Aroeira vellinum í Lissabon, en þar hafa meðal annars verið haldin mót á Evrópumótaröð karla og kvenna. Völlurinn er bæði langur og þröngur, en af öftustu teigum spilast hann 6367 metrar.

Aðstæður reyndust kylfingum krefjandi og var enginn hringur spilaður undir pari. Sjötíu kylfingar tóku þátt í mótinu og voru þar fjörutíu Íslendingar, en tuttugu efnilegir kylfingar frá golfklúbbum landsins tóku þátt í mótinu ásamt landsliðunum.

Verðlaunahafar mótsins

Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, stóð uppi sem sigurvegari í kvennaflokki, en hún lék átta höggum betur en næsti kylfingur. Embla lék hringi mótsins á 80-74-73 höggum og lauk leik á ellefu höggum yfir pari í heildina.

Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, varð önnur á nítján höggum yfir pari. Bryndís lék hringina á 81-77-77 höggum.

Eva Fanney Matthíasdóttir varð jöfn í þriðja sætinu, höggi á eftir Bryndísi, en fimm af efstu sex kylfingum mótsins komu frá Íslandi.

Fimm af efstu sex

Óliver Elí Björnsson, GK, lék best allra í karlaflokki. Óliver lék hringina þrjá á 77-82-74 höggum og endaði þriðji í heildina en annar í flokki 18 ára og yngri.

Valur Snær Guðmundsson, GA, endaði í sjötta sæti mótsins á nítján höggum yfir pari í heildina. Hann varð einnig annar í flokki 23 ára og yngri.

Fimm öflugir í efstu tíu sætunum

Hér má skoða úrslit mótsins

Seinna mót hópsins verður GJG Juniors International á Aroeira Pines Classic vellinum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir er ríkjandi meistari kvenna í mótinu, en verður þó ekki á meðal keppenda í ár til að verja titil sinn.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ