GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Arnar, Halldór, Eva, Pamela og Valur
Auglýsing

Tuttugu íslenskir landsliðskylfingar voru á meðal keppenda í GJG Juniors International mótinu í Portúgal sem fór fram dagana 2.-5. apríl. Mótið var leikið á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon og var seinna mót hópsins í þessari keppnisferð.

76 kylfingar tóku þátt í mótinu og voru þar 40 Íslendingar, en tuttugu efnilegir kylfingar frá golfklúbbum landsins tóku þátt í mótinu ásamt landsliðunum.

Eva Kristinsdóttir, GM, stóð uppi sem sigurvegari kvenna eftir flotta spilamennsku. Hún leiddi mótið frá fyrsta hring og lauk leik á fjórum höggum yfir pari í heildina. Eva lék hringina þrjá á 70-74-76 höggum og var fjórum höggum á undan hinni frönsku Céleste Bobo Lloret.

Eva eftir sigurinn

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, varð þriðja á þrettán höggum yfir pari. Hún lék hringi mótsins á 80-77-72 höggum.

Margar léku vel í mótinu

Í karlaflokki var það Arnar Daði Svavarsson, GKG, sem lék best allra Íslendinga. Hann lék mótið á einu höggi yfir pari í heildina og endaði þriðji. Arnar endaði mótið af krafti og fékk tvo erni á síðustu fjórum holum lokahringsins.

Óliver Elí Björnsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á öðrum hring mótsins. Hann fullkomnaði með því fimm holu kafla sinn þar sem hann lék fimm undir pari. Betur má lesa um afrekið hér.

Gott skor hjá okkar mönnum

Valur Snær Guðmundsson, GA, lék best allra í flokki 23 ára og yngri og Halldór Jóhannsson, GK, varð annar í flokki 14 ára og yngri.

Hér má sjá úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ